Fimmtudagur 19. nóvember 2009

Þá er maður kominn aftur til Reykjavíkur, eftir vinnuferð með mömmu til Blönduóss.  Skruppum reyndar í skottúr yfir Þverárfjallið, til Sauðárkróks, rétt til að heilsa upp á mæðgurnar og ömmuna og afann, langömmuna og langafann.

Komum í bæinn í hádeginu og ég vann frameftir degi með Andrési Djúpavogsoddvita, sem alltaf er uppbyggilegt og skemmtilegt.

Fór svo á stjórnarfund hjá Umhverfi og vellíðan, kl. 16.30.  Frábær fundur, mikið "kreativití" ... og bara æðislegt.

Til stendur að taka annan fund núna í kvöld, með spítalahópi samtakanna.  Það verður rosalega skemmtilegt er ég viss um!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband