Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Spennusagan Megong - 1. kafli. Fundurinn

30. janúar 2008 - Reykjavík, gjarnan kölluð borgin við sundin.  Handan þeirra rís Esjan, með sinn hæsta punkt í 909 metrum yfir sjávarmáli og í norðri blasa Skarðsheiðin og Akrafjall við. 

IMG_5640
Frá Reykjavík

Í borginni er Alþingi Íslendinga en einnig mjög mörg tölvufyrirtæki. Í götu einni austarlega í borginni er húsnæði Tölvuvinnslustofunnar að finna en fyrirtækið sérhæfir sig í margvíslegri þjónustu varðandi tölvur.  Uppi á annarri hæð höfðu átt sér stað grafalvarlegar samræður.

„Harði diskurinn hefur verið blokkaður að hluta til og við höfum ekki aðgang að þeim upplýsingum sem þar eru að finna".  Múrenan beit í neðri vörina og þagði.

Svitadropi lak niður enni tölvusérfræðingsins og hann hélt áfram: „Það er ekki annað í stöðunni en að taka aðra tölvu, annars ... "  Múrenan stóð upp og gekk út að glugganum.  Rimlagluggatjöldin voru dregin fyrir.  Múrenan skaut vísifingri og löngutöng inn á milli tveggja rimla og glennti þá varlega í sundur.  Ofurlítil ljósglæta skein inn í rökkvað herbergið.

Hún sneri sér við.  „Ertu að segja mér að diskurinn geti hrunið á hverri stundu og upplýsingar á honum glatast??"  Hún horfði þráðbeint í augu sérfræðingsins.

„Já ... ég er að segja það." 

Fjórum klukkustundum síðar var stemningin heldur rafmögnuð á kaffistofu ráðgjafafyrirtækisins G.J. Lausna, þar sem Múrenan sat og át dýrinds sveppasúpu.

Múrenan ýtti súpuskálinni frá sér.  Hún staðnæmist úti miðju borði og svolítið af súpunni skvettist út á borðið.

„Herrann vill ómögulega meira?", spurði frú Guðlaug, um leið og hún greip skálina.
„Hvar er spúsan?" hreytti Múrenan hranalega út úr sér.
„Hún er úti með fyrrum samstarfsfólki sínu, þér ætti að vera um það kunnugt!  Það er nú ekki svo lítið búið að ræða það."  Frú Guðlaug bar súpuskálina yfir að vaskinum.

„Hafðu upp á henni fyrir mig!  Strax!!"

„Hvað segirðu, er diskurinn að hrynja??!  Hvað er ég búin að segja þér það oft að við þurfum flakkara??"  Múrenan gat ekki haft símtólið nærri eyranu, þegar spúsan var í þessum ham.  Það hlutu allir á kaffihúsinu Uppsölur, þar sem hún var stödd, að heyra hvað þeim fór á milli.

„Má ég biðja þig um að tala ekki svona hátt?!?"  Múrenan varð ergileg.  „Til að geta keypt flakkara þarf peninga og þá höfum við ekki."
„Nei, en við höfum heldur ekki efni á að tapa öllum gögnunum ... hvað heldur þú að G.J. segi þá??!?"

Enn einu sinni notaði hún þessi rök, Múrenan vissi það alveg að gögnin voru ómetanleg en hvað átti svo sem að gera?  Peningarnir voru ekki til.

„Tala við þig seinna."  Spúsan skellti á.

 

1. febrúar 2008.  Í húsi í Þingholtunum var verið að undirbúa samkomu.

IMG_4807

„Ertu búinn að kaupa gosið??", spurði G.J forstýra G.J. lausna, Múrenuna.  „Nú er fólkið að koma eftir hálftíma ... ?!?"
„Ég skal bara sjá um þetta ... vertu ekki að hafa þessar endalausu áhyggjur."  Múrenan reyndi að sýnast sjálfsörugg og hæfilega kærulaus.

G.J. var ekki skemmt.  Hún þreif þéttingsfast í jakka Múrenunnar.
„Heyrðu nú, karlinn minn??  Er það ekki alveg á hreinu hver gefur fyrirskipanirnar hérna??!!  Eitt svona svar í viðbót og þú veist næst af þér úti á gangstétt!!!" 
Múrenan þornaði í munninum.
„Haa?!?  Jú, jú ... ég ætla að hringja í Stjóra og biðja hann um að koma við í búð á leiðinni hingað ... "  G.J. kinkaði kolli því til samþykkis, leysti takið rólega og gekk í burtu.

IMG_2993
Svona var Múrenan þegar G.J. spurði hana um hvort gosið væri á leiðinni

G.J. leit yfir herbergið.  Liðsmenn voru að týnast inn. 
„Djöfullinn ... fimm agentar hafa boðað forföll ... !!" hvíslaði hún hvasst í eyra Múrenunnar, „... og það er ekki nógu gott!!  Og svo kemur Blómasalinn ekki."
„En hvað með þá Glitnismenn??"
„Þeir eru meðal hinna fimm sem koma ekki."
„Þannig að við komumst þá ekkert áfram með það mál í kvöld ...??"  Múrenan spurði hikandi.
„Af hverju ekki??  Strúna og Messíana koma!!"
„Nújá?!?"

G.J. reyndi að sjá hverja vantaði enn.  Þarna voru Saumi og Vandráður, Dísa, B. Brjánsson, Króksgellan, hafnfirski sjúkraþjálfarinn, Dexter og Melissa.  Þar að auki vissi G.J. af spúsunni og ungfrú Austurbæ í öðru herbergi.

IMG_2988
Saumi var tilbúinn í að taka að sér mikilvæg verkefni

Mínúturnar liðu.  Loks kom Strúna og stuttu síðar Messíana.  Með í för voru Fúfú og Frauti.  Ekkert bólaði á Stjóra og Miss Dawkins.

IMG_2972
Messíana og Frauti mættu loks á fundinn

„Hvar í andskotanum eru þau??"  G.J. beindi orðum sínum til Múrenunnar.  Forstýran hafði áhyggjur af því að liðsmennirnir yrðu viðþolslausir ef þeir þyrftu að bíða mikið lengur í hinu reykfyllta bakherbergi.  Augljós merki farin að koma fram, Vandráður að sofna, B. Brjánsson að sýna spilagaldra og Króksgellan að tékka mannskapinn af.

IMG_2994
Króksgellan tékkar hvort Fúfú sé ekki að einbeita sér að verkefni kvöldsins

En loks birtist parið, sem beðið var eftir.

„Og það er þá niðurstaða fundarins í kvöld, í ljósi þeirra aðstæðna sem komnar eru upp, að Múrenan og spúsan fari strax í fyrramálið að leita lausna.  Saumi, Dísa, Stjóri og Miss Dawkins útvega þau gögn sem nauðsynleg eru, hafi samráð við Dodgerinn og gögnin verði tilbúin í síðasta lagi á sunnudagskvöld.  Skilið??"
„Já."


IMG_2998
Stjóri, Miss Dawkins og spúsan hlusta einbeitt á ræðu G.J.

„By the way ... hvar er Dodgerinn í kvöld?", spurði G.J.
„Var hann boðaður?", spurði Saumi á móti, „ég heyrði í honum í dag og hann minntist ekkert á það ... "
„Hvaða klúður er þetta eiginlega??!?"  Múrenan fékk ill augnaráð frá G.J.  Hún hélt svo áfram: „Króksgellan fer norður svo fljótt sem auðið er og sér til þess að bækistöðvar þar séu tilbúnar.  Skilið??"
„Það verður allt undir kontról", svaraði Króksgellan yfirvegað og hallaði sér aftur í stólnum, sneri höfðinu lítillega og blés hnausþykkum vindlareyk framan í Múrenuna, sem sat næst henni.  „Náðu í malt!" skipaði hún, Múrenunni.

G.J. hélt áfram.  „Aðrir koma aftur hér til fundar á sunnudaginn kl. 11.  Þá er mikilvægt að Glitnissamsuðan mæti ásamt Vertinum.  Dexter mætir fyrir hönd Blómasalans ... er það skilið Dexter?!?"
„Já."
„Svo þarf að tryggja að Lena unga verði hér ... ég sé um það!"

IMG_2978
Í lok fundar, G.J. Vandráður, Stjóri og Miss Dawkins

Framhald ...


Margt í mörgu

Það hefur rignt alveg feiknin öll í Sydney í dag, Múrenan hefur ekki nákvæmar tölur á hreinu ... núna til dæmis er alveg hellirigning.

Sydney-búar kvarta í einu orðinu um að það hafi ekkert sumar komið þetta árið, en segjast svo eiginlega vera hálffegnir í hinu orðinu.  Af hverju?  Af því að eðlilegt sumar hér í Sydney er með afbrigðum sólríkt, heitt, rakt en samt þurrt(!?!).  En í sumar hefur þetta allt saman verið öfugsnúið, það hefur rignt mikið (sem er gott fyrir vatnsbúskapinn), það hefur ekki verið heitt (bara svona 25°C að meðaltali), alls ekkert rakt og sól hófleg.

Þar að auki komst Múrenan að því í dag, að fólk sem les yfir vísindagreinar er furðulegur þjóðflokkur. Fyrir nokkru sendi Múrenan inn grein, sem hún vonaði að hlyti náð fyrir augum ráðstefnuhaldara 39. ráðstefnu EDRA, sem halda á í Mexíkó í maí.  Svona til að gera langa sögu stutta, smaug greinin í gegnum nálaraugað og var samþykkt.  Hinsvegar fylgdu með samþykki ráðstefnuhaldara, þrjú bréf frá ónafngreindum yfirlesurum.  Einn þeirra réð sér varla fyrir kæti vegna greinarinnar, sagði hana hreina snilld.  Næsti sagði greinina í meðallagi en sá þriðji sá bara rautt, sagði greinina hörmulega!!

Múrenan myndi skilja ólík viðhorf yfirlesara ef um væri að ræða skáldsögu eða eitthvað því um líkt ... en hvernig í ósköpunum hægt er að vera svona hræðilega ósammála um vísindagrein, er Múrenunni illskiljanlegt.  Þessi grein var svokölluð "review"-grein, þar sem Múrenan reifaði hvað hefur verið gert fram til dagsins í dag innan þess fræðasviðs sem hún hefur áhuga á.  Þetta voru engar rannsóknarniðurstöður eða þess háttar ...
Í ljósi þessa má skilja það betur en fyrr af hverju stríð og óöld er í veröldinni. Úr því menn hafa svona ótrúlega ólíka sýn á einni, lítilli, sætri grein, sem gerir engum mein, hvernig er þá hægt að ætlast til þess að menn séu sammála um hver og hvernig eigi að stjórna í Kenýa eða Pakistan?
En jæja, ... greinin fór í gegn og það er það sem skiptir máli!!

Svo komst Múrenan að því einnig í dag að hún er fyrsti doktorsneminn innan arkitektardeildar Háskólans í Sydney frá upphafi, til að ljúka svokölluðu "research proposal" á fyrstu önn doktorsnáms.  En þess má geta að Múrenan náði þessum áfanga 7. desember síðastliðinn.
Þetta hlýtur því óhjákvæmilega að gefa til kynna að Múrenan er bara andskoti snjöll ... fyrsti neminn frá upphafi!!!  Ekki slæmt hlutskipti það!!  Það er nú ekki eins og deildin hafi verið stofnuð í gær!!

Að lokum ... Múrenan ætlar að "treina" það svolítið lengur að setja ferðasöguna inn á netið ... í alvöru talað, hún bara nennir því ekki núna enda klukkan orðin eitthvað yfir 11.  Múrenan býður því bara góða nótt ...

... ferðasagan (fyrsti kafli) kemur líklega á morgun!! 


Miðvikudagur

Það er alveg ljóst að líf Múrenunnar er farið að taka stakkaskiptum hér í Sydney, eftir daufa daga til að byrja með ... þessi dagur hefur til dæmis verið alveg feykilega góður ...

Til dæmis slapp Múrenan alveg við að éta grillaða hamborgara í boði skólans í hádeginu í dag, einungis vegna þess að hún áttaði sig ekki á grillpartýinu, fyrr en hún hafði borðað nestið sitt að upp til agna. 
Málið var að í morgun útbjó Múrenan besta nestispakka ævinnar, það var pasta með sveppum og góðri sósu, hvítlauksbrauð, grískt salat og æðislegar ólífur.  Í hádeginu meðan hún át þetta, hlustaði hún á torkennilegt hljóð sem barst inn um opinn gluggann, en af einhverjum ástæðum taldi Múrenan að hljóðið kæmi frá loftræstikerfinu ... en allavegana ... til að gera langa sögu stutta barst hljóðið frá grilli sem var úti á veröndinni.

Þegar Crighton félagi Múrenunnar spurði hana hvort hún ætlaði ekki að tékka á BBQ-inu, gat Múrenan ekki hugsað sér það ... pakkfull af góðgætinu sem áður hefur verið nefnt.  En eftir að Chumporn og Crighton óskuðu heitt og innilega eftir kompaníi, gaf Múrenan eftir og mætti á staðinn.  Hún borðaði samt ekkert, eins og áður hefur komið fram.

Upp úr kaffileytinu fóru Múrenan og Crighton svo á "orientation week", en svo kallast kynningarvika nýnema hér í Háskólanum í Sydney.  Í "o-week" eru hin ýmsu félög að kynna starfssemi sína og vægast sagt margt í boði.  Að minnsta kosti kom Múrenan til baka með fulla vasa af bæklingum og öðru "stöffi".  Þarna var til dæmis kafaranámskeið, surf-námskeið, fótbolti, kórar, sjálfboðaliðastarf fyrir Sameinuðu þjóðirnar, Camping Safari, skylminganámskeið, Búdda-félag og fleira og fleira.  Múrenan ætlar nú að hella sér út í eitthvað skemmtilegt meðfram náminu ... svo mikið er ljóst!!

Í kvöld var svo æfing hjá Gladesville Ryde Magic FC U-14, þar sem Múrenan ku ráða ríkjum upp að ákveðnu marki. Æfingin gekk mjög vel, en meðan á henni stóð gerði þrumuveður, með tilheyrandi rigningu. Á T-skyrtu og stuttbuxum varð Múrenan holdvot á mjög stuttum tíma ... sem var æðislegt!!
Strákarnir spurðu hvort þetta veður væri verra eða betra en á Íslandi ... það er auðljóst að þeir hafa aldrei komið til Íslands!!!

En jæja, á morgun mun fyrsti hluti ferðasögunnar birtast hér á bloggsíðunni ... og eins og áður hefur komið fram verður hún dimm, drungaleg og dýrsleg, jafnvel hættuleg viðkvæmum sálum, en ... hún verður fagurlega myndskreytt!!!


Internet á Bourke!!

Jæja, þá hafa í dag gerst stórkostlegir hlutir ... spúsan rölti sig í dag út í búð og keypti módem og allt í einu eins og hendi sé veifað hafa heimilismenn á Bourke Street komist í samband við umheiminn, en eins og einhverjir vita hefur Bourke verið sambandslaust eftir að rányrkjufyrirtækið Three gekk berserksgang í innheimtu fyrir netnotkun, fyrir nokkrum mánuðum.

Lítið fallegt, hvítt tæki blasir nú við Múrenunni þegar hún lítur upp af tölvulyklaborðinu ... það er módemið!!

Og hvað þýðir það??

Það þýðir að brátt kemur ferðasagan inn á bloggið ... en hún er þessa dagana í smíðum og verður dimm, drungaleg og óhugnalega spennandi þegar hún mun líta dagsins ljós.  Í öðru lagi mun verða "megauppfæring" á myndasíðunni, en af nógu er að taka, þegar myndefni er annars vegar.  Lesendur Múrenunnar í Sydney verða nefnilega að skilja það að það er tvennt, eða jafnvel þrennt ólíkt að blogga í ró og næði heima fyrir, eða að blogga á skrifstofunni síðla kvöld, svangur og þreyttur, eigandi eftir að labba í 30 mínútur, eftir að bloggskrifum lýkur!!

Múrenan boðar því núna breytta blogghegðun ... og myndasíðuhegðun ...

... verið því stillt á rétt blogg!!!

Múrenan lætur það svo fylgja að internet-tenging heima fyrir, gerir spúsunni líka kleift að blogga ... tékkið á www.123.is/lauga við tækifæri.

 


Súrir dagar!!

Múrenan sárvorkennir sér þessa dagana ... því það er bara ekkert gaman núna!!

Eftir allt ferðabröltið, til Dubai og Singapore, lagðist Múrenan í rúmið síðastliðinn mánudag, ... isss ... hélt að slenið myndi bara rátlast af henni á nokkrum klukkutímum, en það var nú ekki aldeilis svo ... !!!

Múrenan lá sem örend í rúminu í marga daga, eða allt til hún skreið á fætur á laugardaginn.  En það var bara í mýflugumynd og í gær sunnudag, bauð hún spúsunni upp á leiðinlegasta félagsskap í heimi, með því að vera hvorttveggja í senn grjótfúl og afundin í tilsvörum.  Svo heiftarleg voru leiðindin að spúsan sagði að Múrenan hefði verið miklu skemmtilegri þegar hún var sem veikust í vikunni.  

Til að bæta gráu ofan á svart drifu Múrenan og spúsan sig í Powerhouse Museum í gær, í þeirri meiningu að það væri eitthvað skemmtilegt.  Jesús!!!  Þvílík leiðindi!!  Pottþétt leiðinlegasta safn sem Múrenan hefur nokkurn tímann komið á ... samansafn af öllu og engu!!  Múrenan telur að það áhugaverðasta sem hún fann þarna inni, hafi verið einhvers konar hjöruliður, sem var betrumbætt útgáfa af hefðbundnum hjörulið í drifskafti.  Múrenan reiknar ekki með að nokkur hafi áhuga á þessu, þannig að hún ætlar ekki að lýsa þessu neitt nánar.
Og hvað gerðist á meðan Múrenan vafraði um ganga Powerhouse Museum ... tvö frægustu skemmtiferðarskip heimsins mættu hvort öðru í Sydney höfninni ... annað á jómfrúarferð sinni um heiminn, hitt á sinni síðustu ferð!!!  "Stórkostlegt móment" segja þeir sem á horfðu.

Svo er gengið að falla ... ástralski dalurinn búinn að lækka um einhver lifandis ósköp ... er núna tæpar 62 krónur, var 52 þegar Múrenan steig fyrst fæti sínum á ástralska jörð í maí á síðasta ári.  Hver borgar það???  Múrenan hefur verið tiltölulega hliðholl krónunni allt til þessa, líklega af þjóðrembingsástæðum, en stundum er sagt að menn læri ekki neitt nema prófa það sjálfir ... svo mikið er víst að Múrenunni finnst sjálfsagt að ræða það hvort ekki skuli tekin upp önnur mynt.  Sem dæmi hefur Uncle Toby´s hafragrauturinn hækkað um 60 krónur án þess nokkur einasta hækkun hafi átt sér stað hjá verslunarrisanum Coles.

Jæja, það hlýtur að fara að birta yfir aftur ... en eins og mál standa nú, er Múrenan bara súr hérna í Sydney!! 


Meiðsli og teygjur

Eins og áður hefur komið fram á þessari síðu er Múrenan fótboltaþjálfari og núna í morgun var hún mætt með sína menn í Gladesville Ryde Magic (GRM) á Fraser Park í Marrickville og mótherjarnir ekki af verri endanum en það voru að sjálfsögðu hinir rauðgrænklæddu liðsmenn Fraser Park.

Þrátt fyrir nokkuð góða spilamennsku leikmanna GRM í leiknum, þá sérstaklega síðustu 20 mínúturnar í fyrri hálfleik, tapaðist leikurinn 0-3.  Tvö mörkin verða að skrifast að miklu leyti á stærð markvarðar GRM, sem er ekki nægjanleg enn sem komið er, en í báðum tilfellum fór skotið einfaldlega yfir þann ágæta herramann.

Það sem vakti furðu Múrenunnar í leiknum og fyrir leikinn, var hversu mikið var um meiðsli meðal leikmanna GRM, en þess má geta að þeir eru 14 ára gamlir.  Af þeim 15 sem tóku þátt í leiknum í dag, voru 6 tognaðir, ýmist í baki, lærum eða ökklum.
Greinilegt er að aðalþjálfari liðsins hefur ekki lagt nægjanlega mikið upp úr teygjum, meðan Múrenan var fjarverandi, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um það af hálfu Múrenunnar.  Þar að auki hafa fyrrum þjálfarar þessara drengja sem leika undir merkjum GRM, ekki lagt neina áherslu á teygjur því sumir piltanna geta varla teygt fingur sína niður á hné, ef fætur þeirra eru beinir.

Vöðvastyttingar í lærum, rassi og baki eru því greinilegar og mikið ójafnvægi í styrk milli vöðvahópa.  Auk þess eru strákarnir náttúrulega á gríðarlegu vaxtarskeiði, sem gerir teygjur enn mikilvægari en ella.  Múrenunni þykir því blasa við að töluverða vinnu verði að leggja í teygjur á næstu vikum og mánuðum.

 


Sydney ... Múrenan er mætt ... aftur!!!

Loksins hefur Múrenan náð aftur til Sydney, eftir langt og strangt ferðalag og fróðlegar heimsóknir á framandi stadi ... ferðasagan mun smám saman birtast á blogginu ... þannig að það ætti að vera eitthvað fyrir hinn sívaxandi lesendahóp Múrenunnar!!

 Á leiðinni miklu var lítið um svokölluð "internet kaffi", þannig að ekki var hægt að segja ferðasöguna jafnóðum.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband