Mánudagur 16. nóvember 2009 - Íslandsdvölin

Þá er maður nú mættur á heimaslóðirnar ...

Kalt og hvasst á Keflavíkurflugvelli við komuna þangað ... allt eins og það á að vera ...

Gott matarboð hjá Toppu systur í gær.  Þar voru auk heimamanna mættir góðir gestir, Hulda, Muggi, mamma, Daði og Stefán.

Þessir dagur hefur farið í að æfingar á fyrirlestri, örstuttan fund á Skipulagsstofnun og svo vinnu fyrir Djúpavogshrepp.
Það er líka allt eins og það á að vera ...

Þétt dagskrá framundan í Íslandsdvölinni ... Grjóteyri í kvöld, Hvanneyri í fyrramálið, Blönduós annað kvöld, Reykjavík miðvikudagskvöld, fundir á fimmtudaginn, vinna með Andrési Djúpavogsoddvita á fimmtudag og föstudag, veisla á laugardaginn ... og hittingur hingað og þangað ...

Svona á þetta vera ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband