Laugardagsfærsla - 16. október 2010

Sirkusævintýrið heldur áfram hér í Uppsala ... þ.e. draumar um að fara í sirkus dúkka upp á hverjum morgni.

Hinsvegar stranda þeir alltaf á þeirri ísköldu staðreynd að það er enginn sirkus í Uppsala um þessar mundir. 

Þá er næstefst á óskalistanum nú á laugardagsmorgni að fara í bað ... og mun auðveldara að uppfylla það.

Reyndar tók baðferðin óvænta stefnu, þegar kom í ljós að faðirinn ætlaði að skreppa niður í þvottahús.  Rauk þá dóttirin upp úr baðinu, í bleika baðsloppinn sinn og í stígvél og heimtaði að fá að fara með.

Ekki var unnt að verða við þeirri ósk, þannig að hún fór bara í baðið aftur eftir nokkrar samningaviðræður.

--- 

Já, úr því minnst er á samningaviðræður.  Einn leikskólakennarinn sagði við mig um daginn að besta lausnin til að leysa helstu deilur heimsins væri sjálfsagt sú að senda nokkra leikskólakennara á staðinn ... einfaldlega vegna þess að þeir væru allan daginn að leysa deilur fólks á sama þroskastigi. 

Mikið til í því ... :)  

---

Rétt í þessu lauk baðferðinni.  "Gott í bað ... ókei" sagði sú stutta þegar hún kom upp úr.  

---

 
Hér eru sæljónin í sirkusnum sem er mikið rætt um ... sérstaklega það að þau hafi kysst húsbónda sinn ... það þykir sérlega merkilegt og skemmtilegt.


Í frábæru freyðibaði ...


Í bleika sloppnum ...

 
Í sama slopp í júlí 2009 ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þið verðið endilega að halda upp á sloppinn og láta hana í hann að ári ... ef hún mun þá komast í hann :) Frábær hugmynd að fá leikskólakennarana í heimsmálin, og þá helst þá sem vinna dags daglega á yngstu deildunum.

Stjóri (IP-tala skráð) 18.10.2010 kl. 01:12

2 Smámynd: Páll Jakob Líndal

Við munum gæta sloppsins eins og sjáaldurs augna okkar og birta mynd af honum ásamt eiganda að ári.

Páll Jakob Líndal, 18.10.2010 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband