Fimmtudagsleggja II - 26. nóvember 2009

Hlutirnir að fara að stað hér í Uppsala.

Dóttirin fór í leikskólann í morgun, eins og lög gera ráð fyrir ... smá spenna í loftinu um hvernig hún myndi taka því, þar sem síðasti skóladagur fyrir Íslandsferð endaði með stóru bitfari á kinninni.
Það er víst búið að taka svolítið á málum bitvargsins.

Lauga í vinnunni í dag ... ekkert nema gott af því að frétta.

Sjálfur hef ég verið að vinna í doktorsverkefninu mínu í dag, auk þess að svara tölvupóstum og redda praktískum hlutum varðandi námið.

Eftir að hafa rýnt svolítið í gögnin er ég enn sannfærðari um að niðurstöðurnar verða stórmerkilegar.  Ég mun að sjálfsögðu birta þær á heimasíðunni minni þegar þar að kemur, eins og ég var búinn að lofa.

---

Í kvöld sýndi dóttirin enn einu sinni hversu mikill tæknisnillingur hún er.  Móðir hennar æpti upp yfir sig af undrun, þegar hún kveikti á sjónvarpstækinu með því að snerta hlið þess! 

"Hvernig fórstu nú eiginlega að þessu?!?"  Dóttirin skildi ekki alveg þennan hávaða og glápti á móðurina.  Svo benti hún á takka sem eru á hlið sjónvarpsins, og einmitt ætlaðir til að kveikja og slökkva.
"Ekki hafði ég hugmynd um að þetta væri hægt?!?" Móðirin leit á mig.

Sjálfur hafði ég ekki hugmynd um þetta væri hægt.


Snillingurinn á heimilinu gerir tilraun, sem annað heimilisfólk botnar ekkert í ... en það er sennilega enginn mælikvarði ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband