Algjörlega önnur tilraun ...

Já, þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að betrumbæta bloggsíðuna Múrenan - í Sydney, því allir góðir hlutir eiga að dafna og þroskast.

Það er nú ekki verra þegar síðuhaldari stefnir óðum að því að verða tölvunörd.

Búast má við því að bloggsíðan verði orðin alveg frábærlega frábær áður en langt um líður!!

En hér er algjörlega önnur tilraun!!

Það er gaman að segja frá því að útsendingar hefjast á afmælisdegi ömmunnar á Sauðárkróki, en eins og flestum lesendum Múrenunnar - í Sydney er í fersku minni, þá einmitt fæddist sú stutta á afmælisdegi afans á Sauðárkróki.

Það er því óhætt að segja að reynt sé að gera vel við þau hjónakornin á Króknum ... enda eiga þau ekkert annað skilið ...

Þar að auki, ... og er það ekki síður ánægjulegt ... á félagi Frex, sjálfur silfurverðlaunahafinn úr Mongol Rally 2008, líka afmæli í dag!!

Ég á í fórum mínum eina mynd af afmælisbörnum dagsins, það er að segja þar eina mynd sem inniheldur bæði afmælisbörnin ... hún var tekin á KISS-kvöldi í febrúar 2007 ...

IMG_5180#3 by you.
Afmælisbörnin ásamt móður síðuhaldara (t.v.) á KISS-kvöldinu góða í febrúar 2007

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er náttúrlega bara algjör snilld. Mjög gaman að sjá ykkur svona life.

Þóra (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 13:37

2 identicon

Frábært að fá ykkur svona lifandi heim í stofu...og fín mynd af afmælisbörnunum og hörðustu KISS-urum landsins

Stjóri (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 01:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband