Eitt ár í Sydney

Nú árið er liðið í aldanna skaut ...

Það var einmitt þann 4. maí 2007, sem við Lauga lentum fyrst hér í Sydney eftir tæplega 40 klukkustunda ferðalag frá Íslandi, með tvær ferðatöskur og tvo troðfulla bakpoka að vopni ... tilbúin til að takast á við algjörlega ný viðfangsefni.

Árið hefur liðið hratt, alveg hrikalega hratt ... en það hefur líka verið mjög skemmtilegt og sérlega lærdómsríkt!
Erfitt er að segja hvað stendur upp úr á þessu ári ... en það sem kannski fyrst kemur upp í hugann er Sydney maraþonið í september síðastliðnum ...

 

... frábær ferð í Blue Mountains í júlí ...

 

... fyrirlestrarnir mínir í skólanum í nóvember og desember ... 

 

... að ógleymdum tvennum KISS-tónleikum í mars!!!

 

Svo er það náttúrulega allt þetta frábæra fólk sem við höfum kynnst á þessu eina ári ... fyrir það ber að þakka alveg sérstaklega!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært hvað allt hefur gengið vel á ykkar fyrsta ári þarna úti...og ennþá betra að geta fylgst með ykkur í gegnum bloggið. Mynd ársins = Múrenan í sigurvímu eftir maþonhlaupið

Stjóri (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 02:04

2 identicon

Já, tíminn er svo sannarlega fljótur að líða!!

Helga Guðrún (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 11:28

3 identicon

Ja hérna hér !!!  Tíminn líður en miðað við myndina af þér uppí rúmi þá hefurðu bara ekkert skánað þótt þú sért á hvolfi

HEHE   Hvað er að frétta af tilvonandi frumbyggja í kúlunni ???

kv SJKJ 

Stebbi (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 12:34

4 Smámynd: Páll Jakob Líndal

Já, óhætt að segja að árið hafi liðið hratt ... og ég harðneita að ég hafi ekkert skánað ... ég er til dæmis miklu skárri í ensku núna en ég var fyrir ári!!  Að minnsta kosti get ég skilið flest af því sem sagt er við mig nú, (ólíkt því sem gerðist í fyrra), þó stundum þurfi samt að segja það tvisvar, svo ég skilji það ... hinsvegar er ég alveg jafn ömurlegur í að tala þetta hrognamál ...

Varðandi íslenska frumbyggjann í kúlunni hefur hann það gott ... djöflast eins og óður þar ... hann verður samt helst að bíða í nokkrar vikur enn með að sleppa út!! 

Páll Jakob Líndal, 6.5.2008 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband