Þriðjudagur 29. mars 2011 - Smá mótbyr

Þetta eru meiri andskotans dagarnir ...

- rannsóknin sem fór í gang í síðustu viku virðist ekki vera að heppnast sem skyldi ... ætli það seinki ekki doktorsverkefninu um svona hálft ár eða svo ...

- að finna út úr rannsóknargögnunum sem ég safnaði í haust er slíkur höfuðverkur að það hálfa væri nóg ... og enginn til staðar til að ræða um þau.

- hæsti mögulegi leikskólagjaldataxti er yfirvofandi vegna þess að mjög treglega hefur gengið að útvega nauðsynlegar upplýsingar úr "kerfinu".

- "bráðskemmtileg" tilkynning barst í gær um að við værum sennilega að missa íbúðina í lok ágúst.

o.s.frv.

Verra gæti það ugglaust verið en ég er samt skítfúll yfir þessu ...

---

Held að nú sé nauðsynlegt að rifja upp "andstæðu-ofsóknarbrjálæðið" sem William Clement Stone gerði frægt.

Það er svona: "Allt sem á sér stað í heiminum gerist bara í þeim tilgangi að auka velferð mína."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Meðan allir halda heilsu gengur allt annað upp - lífið er þolinmæðisvinna ;-)

Linda (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 22:18

2 Smámynd: Páll Jakob Líndal

Ójá ... þetta er svo rétt hjá þér ... Linda :)

Gleymdi mér aðeins í gærkvöldi ;) ...

Páll Jakob Líndal, 30.3.2011 kl. 07:44

3 identicon

Ljótt að heyra með verkefnið og íbúðina en þetta fer vonandi allt saman vel. Um að gera að taka andstæðu-ofsóknarbrjálæðið á þetta!:) 

Stjóri (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband