Þriðjudagur 1. mars 2011 - Lítið í fréttum

Hef þetta stutt núna ...

Hefðbundinn dagur með smávægilegum landvinningum eins og alltaf.  Annars, aldrei þessu vant, kvef og höfuðverkur í allan dag.

Aðrir heimilismenn bara hressir ... reyndar var dóttirin eins og úrillt ljón þegar hún kom heim af leikskólanum. En eftir að hafa hvílt sig svolitla stund og fengið sér svolítið að borða, varð allt betra.

---

Í athugasemd við færslu gærdagsins bað Sigrún frænka um óléttumynd af Laugu ...

Það verður nú að segjast eins og er að þær eru frekar af skornum skammti og til að bæta úr myndaleysinu ... set ég inn mynd af henni þegar hún var ólétt úti í Sydney árið 2008.  Myndin er tekin í Centennial Park hinn 11. maí.

Hún er eiginlega alveg eins núna og á myndinni ;) . 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband