Þriðjudagur 9. nóvember 2010 - Það snjóar

Í dag hefur snjóað andskotann ráðalausan ... og óhætt að segja að undirritaður sé ekki hrifinn ...

Þetta byrjaði í morgun með þessu ...

Og í kvöld var ástandið orðið svona ...

 

Það getur vel verið að einhverjum þyki þetta væl ... en bara til að nefna það ... þá snjóaði þann 15. desember 2009 í Uppsala í fyrsta skiptið þann veturinn.  105 dögum síðar ... já, hundraðogfimm dögum síðar ... tók þann snjó upp.

Í ár er snjórinn mættur rúmum mánuði fyrr ... og miðað við síðasta vetur má búast við að 140 "snjódagar" séu framundan ...

---

Í dag hef ég unnið að undirbúningi fyrirlesturs sem ég á að halda á morgun suður í Lundi.  Það er svokallaður "area group meeting" sem stendur fyrir dyrum.

Samkvæmt spánni er enginn snjór í Lundi.

---

Þá hef ég einnig unnið í greininni minni og er þeirri vinnu senn að ljúka ... ef guð lofar en óhætt er að segja að ótrúlegar tafir hafi orðið á þessari grein.  En ólíkt því sem hingað til hefur tíðkast stendur það á mér að vinna í greininni.  Það er því ekkert annað en að herða róðurinn ...

--- 

Stærsta frétt dagsins er svo auðvitað sú að Lauga rúllaði upp prófinu sem hún var í á mánudaginn.  Fékk 9 og var örugglega best í bekknum ...

... ég er alltaf að segja það að konan er snillingur ...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er bara heilmikil jólastemning yfir kvöldmyndinni. Það myndu nú sumir hér á klakanum fagna 140 snjódögum - og þá um leið fleiri en 5 skíðadögum í Bláfjöllum!

Glæsilegt hjá Laugu! Hún er náttúrulega snillingur sem rúllar öllu upp sem hún tekur sér fyrir hendur.

Gangi þér vel með fyrirlesturinn í Lundi  ...og reyndu svo að hunskast til að klára greinina

Stjóri (IP-tala skráð) 10.11.2010 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband