Sunnudagur 25. október 2009

Þá tóku Svíarnir upp á því að breyta tímanum ... gerðist klukkan eitt í nótt ... þetta er nú meiri vitleysan finnst mér að vera svona að hringla með klukkuna.

Ástæðan er sögð sú að þeir vilji fá meiri birtu á morgnana?!?  Eftir því sem mér skilst verður sú morgunbirta ekki fyrir hendi eftir nokkrar vikur ...

... en það er kannski eðlilegt að menn vilji leggja eitthvað á sig til að hafa smá birtu þegar þeir borða hádegismatinn kl. 9.30.  Þetta er meiri ruglukollarnir þessir Svíar ...

---

Annars góður dagur í dag ... skemmtilegur fótbolti og góður matur standa sérstaklega upp úr ...

---

Jake and the Fatman ... hver man ekki eftir þeim þáttum sem sýndir voru á RÚV í kringum 1990?  Þetta eru einu þættirnir sem ég hef fengið dellu fyrir, þannig að ég varð að horfa á þá.  Ég man að ég sleppti meira að segja fótboltaæfingu einu sinni til að geta horft á þátt ...

Þvílík snilld ... William Conrad fer á kostum ... upphafsstef fyrstu seríunnar er hreint meistaraverk og ég læt það fylgja með í þetta sinni.

"Listen creep!! I gonna take you apart like a clock!!!" ... tímalaus snilld ... klassík!!

Það er samt eitt sem böggar mig, ég næ ekki að heyra almennilega hvað sá feiti segir alveg í lokin.  Ég man að Kristman Eiðsson þýddi þetta á sínum tíma "Gleymdu því ekki!", en mér finnst hann segja eitthvað annað ...
Getur einhver reddað þessu fyrir mig?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband