Mardi Gras & myndir

Jæja, Múrenan og spúsan voru rétt í þessu að koma heim frá því að horfa á Mardi Gras, en svo kallast Gay Pride-ið hér í Sydney.  Þetta var í 30. skiptið sem hátíðin er haldin hér og óhætt er að segja að stuðið hafi verið mikið.  Vagnarnir eða atriðin eða hvað á eiginlega að kalla þetta, voru ekki færri en 400, samkvæmt heimildum Fréttastofu Múrenunnar í Sydney (FMS) og áhorfendur skiptu hundruðum þúsunda.

Múrenan átti einn kandidat í göngunni, en það var Crighton sálufélagi Múrenunnar í hlutverki Yfirstrumps eða Papa-Smurf, eins og hann sjálfur kýs að kalla þessa ágætu teiknimyndafígúru.  Auk þess veit Múrenan að hin þýska Nadalia, var líka meðal göngumanna, en hana hitti Múrenan í fyrsta skipti í gær á Herman´s barnum.  Múrenan, vegna mjög stuttra kynna, ákvað hins vegar að líta ekki á Nadaliu sem kandidat sinn í göngunni. 

Þess má geta að Múrenan sá Papa-Smurf hvergi í göngunni ...

Svo er hægt að minnast á það fyrir áhugasama að Múrenan hefur sett nokkrar myndir inn á flickr.com-heimasíðuna sína.  Linkur inn á myndasíðuna er hérna vinstra megin á síðunni en það er hægt að smella hér, svona í þetta skiptið.

Þar sem Múrenan þarf að vakna eldsnemma í fyrramálið eða upp úr klukkan 20 að íslenskum tíma, hefur hún ákveðið að láta staðar numið nú.  Fyrir liggur leikur við Hakoah á sjálfum Vetrarleikvanginum í Sydney, kl. 10.15 að staðartíma.  Allir eiga að vera mættir kl. 9.00.  Býður einhver betur en það?

Góðar stundir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband