Lynyrd Skynyrd

Fyrir nokkrum vikum fann Múrenan þessa video-klippu á www.youtube.com og góðir lesendur ... þetta er ekki klippa með KISS ... ótrúlegt!!!

Klippan er af hinni stórgóðu hljómsveit Lynyrd Skynyrd, þar sem hún á tónleikum flytur hið geysivinsæla lag "Sweet home Alabama" ...

Hvaða tónleikar þetta eru, hefur Múrenan ekki hugmynd um en þeir eru einhvers staðar í Bandaríkjunum, einhvern tímann á tímabilinu 1974 - 1977.  Ef einhver veit betur ... það um að gera að setja upplýsingarnar í athugasemdaboxið.

Það þarf ekki að hafa mörg orð um þetta lag ... það er frábært í upprunalegri útgáfu, eins og það kemur fyrir á plötunni Second Helping en Múrenan fullyrðir að þessi hljómleikaútgáfa er enn betri en "originallinn"!!

Taktu 6:14 mínútur frá og komdu þér í góðan fíling!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er snilldar útgáfa af þessu frábæra lagi. Gaman að sjá hvað allir eru eðlilegir þarna og í góðum fíling. Einhver spekingurinn segir í athugasemdunum við lagið að þetta sé frá tónleikum á Englandi árið 1976 en hvort það er rétt hef ég ekki hugmynd um.

Halldór (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 21:58

2 identicon

helvíti gaman að þessu. ég var einmitt að syngja þetta í nótt alveg bláedrú samt.

Þóra (IP-tala skráð) 2.12.2007 kl. 18:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband