Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2012

Fimmtudagur 5. apríl 2012 - Tilgangslaus strætóferð og nokkur orð um söng

Fór í "absolút" tilgangslausustu strætóferð ævi minnar í morgun. Guddan var með í för enda tilgangur ferðarinnar að fara með hana á leikskólann (skírdagur er ekki frídagur í Svíþjóð). Allt gekk eins og í sögu meðan ekið var frá Gottsunda til Årsta. Það var lesið, rifið kjaft, híað út um afturrúðuna á aðra bílstjóra (nýjasta æðið hjá GHPL er að sitja aftast í strætónum) og spjallað saman. 

Svo stigum við út, gengum spölkorn. "Mér er illt í maganum" sagði Guddan allt í einu. Ég hlustaði nú lítið á það enda eru "magaverkir" mjög tíðir hjá dótturinni, sérstaklega þegar hún nennir ekki eða vill ekki gera það sem fyrir hana er lagt.

Ég hefði samt betur hlustað því hún var varla búin að sleppa orðinu þegar jógúrtstrókur stendur út úr munninum á henni. Og svo var bætt um betur. Og svo var enn bætt um betur. Þarna stóðum við feðginin á göngustíg með jógúrtpolla allt í kringum okkur auk þess sem hvítir taumar teygðu sig niður eftir "randagallanum" (þ.e. samfestingnum sem hún klæðist þegar hún fer út).

Eftir að hafa þurrkað gallann eins og hægt var farið á leikskólann til að tilkynna ástandið og svo var haldið beint heim aftur.

Þess má þó geta að GHPL hefur verið hin hressasta síðan þetta atvik átti sér stað en gagnsemi ferðarinnar var nákvæmlega engin ... maður er nú ekkert óður og uppvægur að fá að sitja í strætó þessi dægrin ... 

---

Annars er gaman að sjá hvað Guddan hefur tekið mikið stökk síðustu vikur ... ég merki greinilegan mun á henni fyrir og eftir Íslandsferðina.

Hún talar skýrar, hún skilur meira, er glaðari, vingjarnlegri og samvinnufúsari en áður ... ekki amalegt það!

---

Að öðru leyti var dagurinn nokkuð hefðbundinn ... ég sat fyrir framan tölvuna og vann. Var m.a. að skrifa grein um málefni Laugavegarins í Reykjavík. Svo skrapp ég út að skokka og æfði mig svolítið að syngja.

Það er óhætt að segja að söngurinn hjá mér sé að taka á sig nýja mynd þessa dagana. Nálgunin hjá mér er gjörólík þeirri sem sífellt var verið að hamra á í náminu.   

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að söngur og raddtækni séu tvö aðskilin atriði, þar sem hið fyrra hvílir á hinu síðara. Í formlegu söngnámi er þó miklu meira fókuserað á fyrra atriðið og raddtækninni tilviljanakennt blandað við eftir hentugleika þannig að úr verður eitthvað mjög torskilið viðfangsefni.

T.d. er mér með öllu óskiljanlegt að verið sé að ræða við söngnemenda um hvort sjást eigi í tennurnar þegar sungið er á sama tíma og nemandinn getur ekki sungið með afslappaða tungurót. Það að geta ekki sungið með afslappaða tungurót er raddtæknilegt atriði, það hvort sést í tennurnar hefur með ákveðinn hljóm að gera sem byggist á smekk. Enda er það svo að sumir söngkennarar vilja að sjáist í tennurnar en aðrir ekki. Hinsvegar vilja allir söngkennarar að nemendur syngi með afslappaða tungurót.

Málið er einfaldlega þannig að ef ekki tekst að leysa um tungurótina mun þetta atriði með tennurnar ekki skipta neinu máli. Ástæðan er sú að með fasta tungurót mun viðkomandi nemandi mun aldrei geta sungið neitt af viti. Fyrr en síðar mun hann lenda í öngstræti hvort sem tennurnar sjást eða ekki.

Svona er það ... 


Miðvikudagur 4. apríl 2012 - Að standa uppréttur er mikið mál

Nú er svo komið á þessum bæ að allir standa uppréttir ... ójá, sonurinn hefur nú látið af því barnalega atferli að skríða  um á fjórum fótum. Hann endanlega náði tækninni meðan ég var á Íslandi. Núna gengur hann um eins og herforingi, reyndar alltaf eins og hann sé að detta fram fyrir sig og auk þess er hann svolítið valtur. Hann má því ekki við miklu ... eitt lítið pot í öxlina getur alveg dugað til að setja allt á annan endann.

Það er geysilegur munur á honum og GHPL. Á sama aldri gat GHPL alls ekki staðið upprétt hjálparlaust, þrátt fyrir ákafar tilraunir þess efnis. Stóra vandamálið hjá henni var, og víst má telja að það hafi truflað "processinn" töluvert, að hún lærði aldrei að bregðast við ójafnvæginu. Því var það svo að í hvert sinn sem hún fann að jafnvæginu var ábótavant, spenntist hún öll upp og pinnstíf datt hún svo þráðbeint á höfuðið. 

Það er svolítið merkilegt og raunar rannsóknarefni út af fyrir sig af hverju GHPL hoppaði svona sannfærandi yfir þennan hluta þroskaferlisins. Hugsanleg skýring er sú að hún hreyfði sig lítið af sjálfsdáðum á fyrstu stigum ævi sinnar en ástæða þess var að við vorum á miklu flandri út um allar trissur þegar við bjuggum í Sydney og GHPL dvaldi löngum stundum í BabyBjörn. Önnur ástæða gæti verið sú að við höfðum ekki geð á því að láta hana leika sér mikið á gólfinu í íbúðinni í Sydney. Aðeins of margir kakkalakkar og kóngulær fyrir okkar smekk ;) . 

Stubbi hefur á hinn bóginn fengið allt það frelsi sem hann hefur getað hugsað sér að þessu leytinu til. Og svo hefur hann auðvitað GHPL til að líta upp til.

En það er merkilegt hvað þetta er flókið ferli að standa upp á endann ... ótrúlega mikil samæfing og færni í rauninni sem maður hefur tileinkað sér, þó maður hafi lítið spáð í hana síðustu árin. Sjálfsagt er það eins og með svo margt annað ... maður myndi pæla meira í hæfninni ef mann skorti hana.


Mánudagur 2. apríl 2012 - Mættur aftur ...

Jæja ... þá er maður skriðinn aftur til Svíþjóðar eftir mjög árangursríka og skemmtilega ferð til Íslands. Sennilega er besta ferðin sem ég hef farið til landsins svona í seinni tíð ... 

Ég ætla að byrja varlega að blogga aftur ... og ætla bara að setja kommentið frá GHPL sem kom í dag eftir að bróðir hennar hafði slegið leikfangastýri í höfuðið á henni.
Eftir að ég hafði huggað hana inn í herbergi þar sem ósköpin dundu yfir, þá kom hún fram, byrjaði svolítið að vola aftur og sagði við móður sína: "Litli bróðir skemmdi hausinn minn!

Á þessum rúmum 38 árum sem ég hef lifað hef ég aldrei heyrt nokkurn mann taka svona til orða eftir að hafa verið laminn í hausinn ... einhvern tímann er allt fyrst.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband