Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Fimmtudagur 6. janúar 2011 - Nýi bossinn

Við matarborðið í kvöld var Lauga að velta fyrir sér dularfullum fugladauða út um allan heim.  Guddan sat og las Barbapapa á meðan hún tuggði hrísgrjónagrautinn og rúsínurnar.

Lauga var stödd í miðri setningu, þegar upp úr þurru Guddan leit reiðilega upp frá bókinni, teygði fram höndina, þannig að flatur lófinn vísaði beint í andlit móðurinnar og sagði hátt og skýrt:

"Sluta!!" (fyrir þá sem ekki skilja sænsku má þýða "sluta" sem "hættu")

Lauga maldaði eitthvað í móinn en þá slengdi Guddan aftur fram höndinni og ítrekaði:

"Sluta!!

Ég gat nú ekki annað en skellt upp úr. Sneri þá Guddan sér að mér.

"Sluta!!

Lauga leit á mig ... "Hver er það eiginlega sem núna ræður á þessu heimili?!?

---

Síðustu daga hefur Sydney Houdini komist upp á lag með að nota frasann "á morgun". Iðulega þegar maður biður hana um eitthvað eða spyr hana einhvers er svarið "á morgun".

Óhætt er að segja að vitleysan hafi náð hámarki í kvöld þegar Lauga spurði hana hvort hún vildi ekki fara að sofa.

"Á morgun" var svarið. 

---

Annars hefur verið hríðarkóf hér í Uppsala í dag ... ekkert þó í líkingu við þann veðurofstopa sem mér skilst að ríki á Íslandi.  En á uppsalskan mælikvarða er þetta bara mikið veður. 

---

Að öðru leyti hefur dagurinn liðið við skýrsluskrif ... nú er ég að lenda skýrslunni sem ég er að skrifa fyrir Djúpavogshrepp.


Þarna situr sá sem valdið hefur upp á stofuborðinu.


Miðvikudagur 5. janúar 2011 - "Bystander effect"

Jæja, þá er blessuð móðir mín farin aftur af landi brott ... og nú kemur við svakaleg vinnutörn.

Sverrir félagi minn var svo ástsamlega almennilegur að bjóðast til að skutla móðurinni út á Arlanda-flugvöll ... og ekki nóg með það, þau hjónin, þ.e. Sverrir og Dana, útveguðu mér líka bíl þegar móðirin kom hingað til Svíþjóðar fyrir áramótin.

Þar að auki eru þau búin að bjóða okkur tvisvar heim um hátíðarnar og akstur báðar leiðir er að sjálfsögðu innifalinn. 

Ég verð nú bara að segja að þetta eru rausnarskapur og liðlegheit í algjörum sérflokki ... svo sannarlega eitthvað fyrir mig til að læra.  

---

Ég hef stundum spáð í það hvað ég er svona almennt séð, ótrúlega slappur í því að bjóða fram aðstoð mína og hjálp eða bara yfirleitt að bjóða fólkið eitthvað ... það er samt ekki að ég vilji það ekki ... ég bara einhvern veginn fatta það ekki.

Oftast finnst mér bara að fólk geti bara beðið ef það vantar eitthvað ... og ansi oft sneiði ég bara framhjá hlutunum, læt eins og ég taki ekki eftir og hugsa með mér að það hljóti bara einhver annar að redda málunum.

Þetta er oft mjög hallærislegt og alveg hrikalega lítið "twist" í þessu ... ef maður spáir í það.

---

Það er til merkilegt félagssálfræðilegt fyrirbæri, sem kallast "bystander effect" og fjallar um þegar fólk bíður ekki fram aðstoð sína þegar einhver er í nauðum staddur.

Í hverri einustu inngangsbók í almennri sálfræði má finna áhrifamikið dæmi um "bystander effect". Fjallar það um þegar ráðist var á Kitty Genovese nærri heimili hennar í Queens í New York-borg. Var þar að verki raðmorðingi og nauðgari, Winston Moseley að nafni. Meira en hálftími leið frá því Moseley fyrst réðst á Genovese og þar til hann var búin að ganga af henni dauðri.

Fjöldi fólks á að hafa orðið vitni að atburðinum en ekkert aðhafst.

---

Einn þáttur sem hefur mjög mikil áhrif á "bystander effect" er fjöldi vitna að tilteknum atburði en það er eins og fólk finni til minni ábyrgðar hjá sjálfu sér að grípa inn í eftir því sem fjöldinn er meiri.

Ábyrgðin einhvern veginn dreifist yfir á alla og hver og einn fær svo lítinn skerf að honum finnst ekki taka því að gera neitt í málunum og hugsar bara að einhver annar hljóti bara að gera eitthvað. 

Mikið svakalega finn ég oft fyrir þessu ...


Mánudagur 3. janúar 2011 - Sitt af hverju

Jæja ... enn er skrafað hér í Svíþjóð ... 

---

Guddan er nú farin að ganga á tám ... aldrei séð hana gera það fyrr.

Svo er hún líka farin að leggja aftur augun þegar hún er að reyna að sofna ... í stað þess að berjast á hæl og hnakka við að halda þeim opnum þar til Óli lokbrá tók yfirhöndina.

Hún gerði líka eitthvað stórmerkilegt í gær ... ég man bara ekki hvað það var ... en það var stórmerkilegt!

Það er líka gaman að segja frá því að svefninn hjá henni er í tómu tjóni þessa dagana. Hún er farin að vilja leggja sig milli kl. 16.30 - 17.30 og vaknar svo 1,5 - 2 tímum síðar.  Þetta þýðir auðvitað að hún sofnar svo ekki aftur fyrr en upp úr miðnætti. 

Það verður fróðlegt að sjá hversu langan tíma það tekur að vinda ofan af þessu ... en að sjálfsögðu hef ég pælt mikið í svefnmálum dótturinnar ... og ég er sannfærður um að svefnráðgjafar gæfu ekki mikið fyrir mínar meiningar í þeim málum ;) .

--- 

Svo er ég búinn að vinna baki brotnu í grein sem ég er að skrifa fyrir Djúpavogshrepp ... og fjallar um upplifun ferðamanna á Djúpavogi.

Þetta verkefni er mjög skemmtilegt ... og ég hlakka til að sjá niðurstöðuna.


Hér eru mæðgurnar að undirbúa svefninn 

 


Sunnudagur 2. janúar 2011 - Nýjar pælingar

Þessi dagur hefur verið miklu líkari hinum hefðbundna nýjársdegi en gærdagurinn.

Í gær þurfti ég nefnilega að verja mestum hluta dagsins í greinarskrif enda er ég algjörlega á lokasprettinum að skila inn vísindagreininni sem ég hef svo oft minnst á hér á þessu bloggi.

---

Í dag var meira verið að spjalla saman, skreppa út og njóta lífsins.

Umræðurnar voru á mjög skemmtilegum nótum.  Þær voru um barnauppeldi en ég hef mikið verið að pæla í hvaða áhrif það hefur að börn séu með sérherbergi.

Margir leggja upp úr því að koma börnum sínum tiltölulega fljótt á æviskeiðinu upp á að sofa í sínu eigin herbergi.  

Ég hef verið að afla mér upplýsinga um ástæður þessa, s.s. að yngri börn eigi auðveldara að með að tileinka sér slíkar breytingar, það sofi allir betur, börn geti frekar sofnað sjálf o.s.frv.
Út af fyrir sig get ég vel skilið þessi rök ...

... en ég er samt ekki alveg að kaupa þau ...

---

Ég var mörg ár í sveit á mínum yngri árum og hef því kynnst dýrum og atferli þeirra nokkuð vel.  

Eitt af því sem er mjög augljóst þegar fylgst er með dýrum er hvað ungviðið leitar alltaf til móður þegar kemur að því hvílast.  Það er sama hvort talað sé um kálfa, hvolpa, folöld, kettlinga eða lömb ... þegar kemur að því að hvílast þá leggjast afkvæmin, meðan ung eru, ævinlega eins nálægt mæðrum sínum og þau geta.

Það atferli virðist því með öðrum orðum vera harðvírað í þau frá náttúrunnar hendi ... þarna er öryggið nefnilega mest.  Með þessum hætti má auka verulega líkurnar á að komast af í þessum heimi. Þetta er "púra" Darwin-ismi - survival of the fittest ...

Því má spyrja ... gildir ekki það sama um börn?
Ég held að það séu viðurkennd sannindi að ung börn vilja, frá náttúrunnar hendi, vera nálægt foreldrum sínum. 

Má þá ekki leiða líkum að því að verið sé að skora þessar grunnþarfir á hólm með því að láta börn sofa í sérherbergi?

Hvaða afleiðingar hefur það? 

Sjálfur veit ég það ekki ... en mér finnst stefna bara ekki "meika sens".

---

Ég hef svo tekið þessar pælingar mínar enn lengra og velt fyrir mér hvort þarna sé ekki hreinlega verið að reka fleyg milli fjölskyldumeðlima, því strangt til tekið á sér stað einhvers konar flokkun á fjölskyldumeðlimum; foreldrar í einu herbergi og börn í öðru herbergi. 

Þennan fleyg er svo gjarnan haldið áfram að reka t.d. með því að hvetja börnin til að leika sér inni í herberginu sínu og jafnvel loka á eftir sér, gefa þeim tölvu sem höfð er inni í herberginu, nú eða sjónvarp ...

... en með þeim hætti má nokkurn veginn tryggja afar lítil samskipti milli barna og foreldra.

---

Þegar börnin eldast, skilja foreldrarnir svo ekkert í því hvað börnin hafa lítinn áhuga á að vera í kringum þá ... en skýra málið með þeim hætti að "svona sé þetta nú bara og hafi alltaf verið svona".

--- 

Fyrir nokkrum árum tók ég viðtöl við meira en 200 manns sem voru um áttrætt. Mjög margir sögðu börn sín hafa lítið samband.

Af hverju?

"Það hafa allir svo mikið að gera ... "

En er það málið?

Getur ekki bara verið að í gegnum tíðina hafi verið rekinn fleygur í samskiptin ... og hann skilji fólkið að?

Ég veit það ekki ...  

... en allavegana finnst mér rökin fyrir að ung börn sofi í sérherbergi lykta allhressilega af hagsmunum foreldra ... hvað er gott og þægilegt fyrir þá. 


Nýjársdagur 2011 - Gleðilegt ár!!!

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband