18.2.2007 | 00:35
Eiki Hauks er töffari!!!
Eiki Hauks er minn maður ... hann rúllaði þessu upp í kvöld. Átti sigurinn skilinn. "Kúlið" á sínum stað, öruggur flutningur, flott að láta alla þessa gítarleikara vera á sviðinu, og svo hörku lag!! Ég held að þetta sé bara eitt það besta sem Ísland hefur sent frá sér í Eurovision - svei mér þá!
Jónsi kom líka mjög vel út ... og Bríet Sunna bætti sig bara helling - segi samt ekki að hún hafi verið góð. En hvað var þetta með lagið hans Torfa Ólafssonar ... "Bjarta brosið". Það lag sökkaði bara "big time", klárlega lélegasta lagið í kvöld, að mínu mati.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.