Laugardagur 26. maí 2012 - Allt að verða vitlaust í Svíþjóð!!

Jæja ... það kom að því að maður væri staddur í landi sem ynni Eurovision-söngvakeppnina ... þvílík stemmning hérna :)  ... já eða ekki ... kynnarnir í sjónvarpinu að minnsta kosti mjög hressir ...

Þegar þetta er skrifað eru tæknivandamál hjá sænska ríkissjónvarpinu, þar sem verið að er reyna að sjónvarpa viðtali við sigurvegarann Loreen. 

Tæknivandamálið leyst ... Loreen er í sjöunda himni og þetta er allt ótrúlegt að hennar sögn. 


Fagnað í stofunni ... Loreen syngur sigurlagið ... GHPL sofnuð í Dóru-náttfötunum undir Dóru-sænginni með Dóru-koddann.

En hérna er tölfræðin hér á þessu heimili.

Á þriðjudaginn var meðaleinkunnin sem ég gaf lögunum 18 var 6,1 á skalanum 0-10 en hjá Laugu var meðaleinkunnin 5,9.
Við gáfum bæði Svartfjallalandi 0 í einkunn en hæst gaf ég Ungverjalandi og Rússlandi 8. Lauga gaf Grikklandi, Rúmeníu, Rússlandi, Írlandi og Kýpur 8 í einkunn.
Þegar kom að því að spá fyrir um hvaða lög færu áfram í aðalkeppnina, var Lauga með 9 lönd rétt en hún hafði rangt fyrir sér með að Albanía færi ekki áfram. Sjálfur var ég alveg úti á túni í þessum spádómi því ég spáði aðeins rétt fyrir um 5 lönd.

Á fimmtudeginum var meðaleinkunnin sem ég gaf 6 en Lauga gaf 5,8 (en að vísu eru ekki öll lögin inn í þeirri tölu heldur aðeins 12 af 18),
Ég gaf hollensku stelpunni um indjánafjaðrirnar á hausnum lægstu einkunnina eða 4.  Lægst á listanum hjá Laugu var Krótatía sem fékk 2.
Við vorum síðan sammála um besta lagið sem var sænska lagið og gáfum bæði 10 í einkunn.
Lauga spáði svo rétt fyrir 8 lönd sem fóru áfram í aðalkeppnina. Klikkaði á Tyrklandi og Bosníu. Sjálfur spáði ég rétt fyrir um 6 lönd.

Í kvöld var meðaleinkunnin hjá Laugu 7,2 en hjá mér var hún 7,0.
Hjá Laugu fékk Albanía 3 í einkunn og þar með lægstu einkunnina en ég gaf Tyrklandi lægstu einkunnina sem var einnig 3.
Lauga gaf sænska laginu 10 í einkunn og ég gaf Svíþjóð og Úkraínu 10 í einkunn.

Um röð efstu laga spáði Lauga Svíþjóð (1. sæti), Kýpur (2. sæti) og Rússland (3. sæti) en ég spáði Svíþjóð toppsætinu, svo Rússlandi og loks Úkraínu.

Lauga spáði íslenska laginu 18. sætinu og ég spáði því 20. Lenti það ekki einhvers staðar þar?
Hvorugt okkar hafði heyrt þetta íslenska lag áður og satt að segja fannst okkur það ekkert sérstakt.

Að lokum má geta þess að Lauga er nokkuð spámannlega vaxin þegar kemur að Eurovision enda sagði hún um leið og hún heyrði lagið Euphoria í Melodifestivalen hér í Svíþjóð (en það er undankeppnin) að þetta lag yrði framlag Svía þetta árið og það myndi vinna aðalkeppnina. Þessi spádómur var settur fram í febrúar ... geri aðrir betur ;) ...

Kemur á óvart að fagnaðarlætin á götum úti hér í Uppsala eru ekki ennþá byrjuð ... sjálfsagt allir bara löngu sofnaðir ... 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

þetta er eithver vitleisa,átti Íslendingar ekki að vera í 1-2sæti??Svo sagði Páll Óskar...

Vilhjálmur Stefánsson, 26.5.2012 kl. 23:42

2 identicon

Mér finnst vanta staðalfrávik og miðgildi......til hamingju

Sandra Jónasdóttir (IP-tala skráð) 27.5.2012 kl. 00:07

3 identicon

Hahahha góður punktur Sandra, Bobbi gæti léttilega misst sig í því og lika reiknað út anovu ... en hefur sem betur fer ákveðið að hafa þetta í léttari kantinum. Hann er Nörd ;)

Lauga (IP-tala skráð) 27.5.2012 kl. 00:19

4 Smámynd: Páll Jakob Líndal

Skil ekki hvernig mér datt í hug að setja fram meðaltalsgildi án þess að geta staðalfrávikana ... mjög ófaglegt!

:D ... gaman af þessu ... mér fannst þessi færsla bara mjög eðlileg þegar ég skrifaði hana en núna ... það er kannski smá nördara-keimur af henni :).

Páll Jakob Líndal, 27.5.2012 kl. 10:45

5 identicon

Þetta er jú pínu nördalegt en það breytir því ekki að það vantar staðalfrávik, staðalskekkju og öryggismörk ... og náttúrulega borðleggjandi að framkvæma einfalt marktæknipróf til að athuga hvort raunverulegur munur sé á skoðunum ykkar. Þetta segir manni ekki neitt svona!! :)

Stjóri (IP-tala skráð) 28.5.2012 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband