14.4.2009 | 07:39
Páskar 2009
Jæja, þá eru nú páskarnir liðnir hér í Uppsala ... bara mjög góðir páskar, sem hafa snúist um að skoða sig betur um hér í Uppsala, ræða um heima og geima, kaupa húsgögn, vinna, borða hollan mat og njóta veðurblíðunnar.
Skírdagur og laugardagur fyrir páska voru helgaðir heilmiklum göngutúrum, og samtals voru gegnir yfir 30 km þessa tvo daga ... töluvert mikið bar fyrir augu, og skoðuðum við t.d. dómkirkjuna, sem ku vera sú stærsta í Skandinavíu eða um 113 m á hæð og 113 m á lengd ... klárlega nokkuð stærri en Hallgrímskirkja. Svo litum við í grasagarðinum, skruppum á kaffihús, keyptum hjól af gömlum karli, komum við í næststærsta IKEA í Svíþjóð og sáum páskatréið á Vaksalatorgi.
Á föstudaginn langa settum við saman barnarúm, borð og stól, sem allt hafði verið keypt í IKEA ... þannig að dóttirin sefur nú í sínu eigin rúmi, þar sem hún getur legið þversum og sparkað út í loftið eins og henni sýnist ...
Að lesa í nýja rúminu
Sydney got a new bed last Friday ... and here she is reading before she gets to sleep
Páskadagur og annar í páskum voru helgaðir vinnu ... Lauga helgaði sig sænskunáminu, sem gengur þetta líka vel, þrátt fyrir að hún pirri sig á því að vera ekki altalandi eftir um 3 vikna veru í landinu. Sjálfur var ég að setja saman heimasíðu fyrir Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur, sem mun birtast á vefnum, innan skamms.
Það held ég nú ...
And here is one extra for all the "Australians", who miss Sydney a lot ...
This is not an everyday situation ... but when Sydney needs to rub her eyes, shortly after she has rubbed her mouth, things can go like this ...
Athugasemdir
Oooo.. krúttibollan. Búin að baða sig upp úr matnum :D Er hún ekki dugleg að sofa í nýja rúminu sínu? Mér sýnist allavegana fara mjög vel um hana þarna.... zzzzz...
Helga Guðrún og Halldór Pálmar, 17.4.2009 kl. 22:05
Hæ hæ. Rosalega var gaman að hitta þig áður en þið fluttuð út. Sé á skrifunum að allt gengur vel hjá ykkur og sú stutta braggast vel. Mér finnst þessi matarmynd af henni náttúrulega bara yndisleg. Hafið það alltaf sem best. Kv. Eyja
Eyja (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 13:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.