Endalok þjálfaraferilsins

Á þriðjudagskvöldið síðasta tókst mér að vinna einstakt afrek!!  Já, ég vil kalla það einstakt afrek ...

... því mér tókst að vera rekinn úr sjálfboðavinnu!!

Og ekki nóg með það ... mér tókst að vera rekinn úr sjálfboðavinnu, þrátt fyrir að standa mig með afbrigðum vel í vinnunni!!

Ég var rekinn úr sjálfboðavinnu, vegna þess að ég sagðist ekki geta unnið með manni, sem vinnur vinnuna sína svo illa að eftir því er tekið og yfir því er kvartað af fjölda fólks!!
Ég var líka rekinn úr sjálfboðavinnu fyrir það að vilja ekki vera aðstoðarþjálfari, þjálfara sem er í þjálfun hjá öðrum þjálfara!!

Já, ég er að tala um endalok mín sem þjálfari U-14 liðs Gladesville Ryde Magic!!  Stjórn félagsins ákvað að láta mig fara þrátt fyrir almenna óánægju með aðalþjálfara liðsins.  Í minn stað kemur yfirþjálfari félagsins og mun hann fylgjast með því að þjálfarinn þjálfi eins og yfirþjálfarinn vill að hann þjálfi!!

Aðalþjálfari U-14 liðsins er sum sé í þjálfun hjá yfirþjálfara félagsins, á sama tíma og hann er að þjálfa liðið!!

Já, ég veit það ... þetta er óskiljanlegt!!!  Með öllu!!!
Ég sagðist ekki vilja taka þátt í þessu og bað um að tekið yrði á málunum af einhverju viti ... því var svarað með því að henda mér útbyrðis!

Já, þjálfaraferill minn endaði því jafn snögglega og hann byrjaði.  Af hverju er mér alveg lífsins ómögulegt að fara hefðbundar leiðir?!?

Viðbrögð strákanna og foreldrana hafa ekki látið standa á sér ... mér vöknar um augun að lesa þau ... lítum á brot úr nokkrum skeytum sem mér hafa borist ...

...  I have really enjoyed and apppreciated the time which you have spent with our team, and hope we will see you again ...
... this is a very sad time, not only for you but also the team as you have been immensely popular with the players ...
... you have taught me a lot about football.  Why do you have to leave?  Thank you for everything you have done ...
... thank you for your work this year and in particular your fun and positive approach with the boys ...
... You have provided Nick with great advise and helped him tremendousily with his overall skill and performance. You have been great at inspiring him and lifting his spirit when it was low. It is very sad news and you will be greatly missed ...
...  I'm sure all the boys and especially ME will be hurt from your loss. Your the best COACH I HAVE EVER HAD!  THANKS PALL FOR ALL YOU HAVE DONE FOR ME. I WILL MISS YOU WITH ALL MY HEART. YOUR THE BEST.  BEFORE EVERY GAME I AM GOING TO SAY our CALL (IN ICELANDIC) IT WILL BE FOR YOU PALL.  I hope you do come back to coach us ...

Ef þessi brot og einkum og sér í lagi, það síðasta, sem kom frá fyrirliða liðsins kremur ekki á mér hjartað ... þá veit ég ekki hvað!!  Drengurinn ætlar að læra að segja "hverjir eru bestir?" á íslensku og öskra það þegar í búningsklefanum fyrir leiki ... og það verður tileinkað mér!!!

Núna er ég farinn að brynna músum ... góða nótt!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ ekki gaman að standa í þessu, en frábært að fá svona góð viðbrögð fá krökkunum og foreldrunum, það er ekki amalegt! (þú varst ekkert að skálda þessi email er það??). Aldrei að vita nema aðalþjálfarinn átti sig á ruglinu og biðji þig að koma aftur.....og þá verður þetta ekki sjálfboðavinna :)

Benný (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 15:02

2 identicon

Segdu okkur nu hver er thessi thjalfara auli a myndinni er (ekki ad meina thig sko).

Addi Palli og Bergthora (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 09:49

3 Smámynd: Páll Jakob Líndal

Þjálfarabastaðurinn er í aftari röðinni, og ber merkimiða um hálsinn ...

... já, og til að það sé alveg á hreinu ... ég skrifaði ekki emailin sjálfur!! :D 
Ég fékk þau í alvörunni send!! 

Páll Jakob Líndal, 11.7.2008 kl. 10:29

4 identicon

þetta eru nú meiri apaheilarnir þarna í stjórn.  vita ekkert hvað þeir eru að gera. ætti að úrbeina þennan þjálfara.

frex (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 13:14

5 identicon

Ég er alltaf að reyna að segja þér það drengur þú ert snillingur. Þeir eiga eftir að koma skríðandi til þín aftur og biðja þig um að þjálfa.  Tölvan mín er búin að vera í rugli þannig að ég hef ekkert getað farið á skype. Hvernig væri að reyna að hittast þar við fyrsta tækifæri??

Þóra (IP-tala skráð) 12.7.2008 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband