20.7.2007 | 14:06
Uppdeit
Vegna þess að Múrenan gerir allt sem hún getur fyrir lesendur sína ... að minnsta kosti þá sem lesa ferðasöguna "Leitin að Gordonfossum", þá hefur hún bætt myndum inn í fyrstu þrjá kaflana, til að sýna lesendum raunverulega um hvað málið snýst!!
Einnig geta áhugasamir séð fleiri myndir á myndasíðu Múrenunnar og spúsunnar ... linkurinn er hérna vinstra megin á síðunni en ef letin hefur heltekið þig þá er Múrenunni það bæði ljúft og skylt að gefa upp vefslóðina http://www.flickr.com/photos/9352654@N02/. Mappan Sydney júlí 2007 inniheldur allt í tengslum við ferðasöguna og verður fleiri myndum bætt við eftir því sem sögunni vindur fram ... þannig að það er um að gera að vera á tánum!!!
En Múrenan lýsir óheyrilegum vonbrigðum með viðbrögð í tengslum við skoðanakönnunina sem einnig er á síðunni, vinstra megin ... og hvetur lesendur enn meira en áður að láta nú ekki sitt eftir liggja ...
Úppss klukkan orðin óheyrilega margt ... nýr sólarhringur er staðreynd ... í Sydney er 21. júlí brostinn á!!! Múrenan fer því að leggja sig núna og biður allar góðar vættir að vernda þig!!
Athugasemdir
Hæ hæ ég tók þátt. Ég er að reyna að vera geðveikt í tísku og komast inn í þetta tölvubusiness. Ég ákvað því að kommenta.
Þóra (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 15:49
Æðislegt!!! Múrenan vissi að örvæntingafull köll hennar um þátttöku í spurningakönnuninni miklu myndu bera ávöxt!!!
Páll Jakob Líndal, 20.7.2007 kl. 23:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.