30.3.2007 | 21:46
Ísland yfirgefið eftir 33 daga!!
Flestum er líklega alveg nákvæmlega sama ... en svona fyrir þá sem hafa áhuga á að vita, þá voru í dag keyptir miðar til Sydney þann 2. maí nk. Framhaldsnámið í umhverfissálarfræði í háskólanum í Sydney er á næsta leyti ... mjög spennandi ...
Raunar tókum við skötuhjúin þá ákvörðun að koma aðeins við í Tokyo á leiðinni til Sydney ... okkur fannst það bara svo rosalega viðeigandi. Alltaf gaman að koma þangað, geri ég ráð fyrir ...
Nú má því fara að spýta í lófana og herða tökin, svo allt það sem þarf að gera, verði gert ...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.