Áfram Dr. Kolbeins!!

Fyrir örfáum mínútum ritaði ég ofurlítinn pistil á þetta ágæta blogg um Dr. Kolbeins og hugmyndaauðgi hennar.

Ég verð að segja að þessi túlkun hennar á forsíðu fermingarbæklings Smáralindar er svo frábær að ég fæ hreinlega gæsahúð við það eitt að hugsa um hana (allt svo, túlkunina) ... þvílíkur snillingur og þvílík kænska að sjá þennan dulda boðskap.  Og benda allri þjóðinni á þetta ...  Það var göfugt, verð ég að segja. 

Áfram Dr. Kolbeins ... flettu ofan af fleirum!!  Til dæmis þeim sem standa bakvið auglýsinguna frá Betra baki ... sofandi fólk í faðmlögum (bls. 51 í Fréttablaðinu í dag)!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Já og öllum þeim sem borða ekki banana þversum.

Tómas Þóroddsson, 9.3.2007 kl. 01:05

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þökk sé Dr. Kolbeins að ég fyrirverð mig í hvert sinn er ég sé mynd bregða fyrir af 14 ára stúlku í einhverjum Smáralindarbæklingi. Og hugsið ykkur stúlkuna sjálfa....hvílík ættarskömm hún hlýtur að vera orðin.

Nei svona í alvöru...eru ekki einhver takmörk...

Gunnar Th. Gunnarsson, 9.3.2007 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband