26.2.2007 | 23:26
Mikilvægi morgunmatarins
Eftir pistil minn í gær ákvað ég að í dag væri bæði staður og stund til að slá á ögn léttari strengi og ætla ég því að segja litla sögu af frænku minni sem var hjá mér í pössun um helgina. Eins og gera mátti ráð fyrir að hún hin hressasta lengi vel, tók við skipunum og gaf skipanir til skiptis. Allt gekk eins og í hinu besta ævintýri en skyndilega síðdegis á sunnudeginum tilkynnti hún mér að sér væri mjög illt í maganum.
Nú?!? spurði ég hvernig í ósköpunum stendur á því?
Sú stutta var með svör á reiðum höndum. Kannski bara af því að ég er vön að borða morgunmat! Það mátti greina hneysklun í málrómnum.
Ég verð samt að viðurkenna að ég skyldi ekki alveg þessa röksemdarfærslu svo síðla dags og svaraði því eftir dálitla umhugsun: Já en ... í dag ert þú bæði búin að borða morgunmat og hádegismat og svo var kaffitími núna rétt áðan.
Frænkan ranghvolfdi í sér augunum og hristi hausinn. Ohhh ... þú skilur ekkert!!! Svo setti hún hendur á mjaðmir og sagði ábúðarmikil: Sko ... ég er vön að borða morgunmat og mér er illt í maganum vegna þess að ég borðaði engan morgunmat í gær!!! Hún horfði stíft beint í augun á mér og líklega hefur hún séð alveg aftur í hnakka í það skiptið. Ég sá að það þýddi greinilega ekki að deila við dómarann.
Athugasemdir
Já ég man eftir þessu, þetta var hrikalega fyndin stund. En það má geta þess að þessi frænka er 8 ára gömul
Sigurlaug (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 14:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.