23.2.2007 | 11:10
Sydney = 65 dagar
Um daginn ritaði ég um væntanlega för til Sydney, og fannst tíminn sem mér var gefinn af hálfu háskólans þar í borg heldur knappur eða 19 dagar. Eftir þónokkrar bréfasendingar og rafræn samtöl við gott fólk, var aðgöngumiðinn minn leiðréttur og mér veittur 190 daga fyrirvari í stað 19 daga. Núna hefur þó endanleg dagsetning verið gefin út af hálfu yfirvalda háskólans í Sydney og er hún 7. maí nk. eða eftir um 65 daga, svo ég haldi mig nú við sömu einingu innan tímaeiningakerfisins.
Þetta er óneitanlega spennandi tímar sem nú fara í hönd - eina sem skyggir á er að við Lauga æltuðum okkur að koma við á Kínamúrnum á leiðinni suðureftir, en líklega mun það ekki lukkast ...
Væntanlega mun þó múrinn standa einhver ár í viðbót, þannig að tækifæri ættu að bjóðast síðar að stíga fæti á þetta svo um sagða magnaða mannvirki.
Það skal tekið fram, af gefnu tilefni, að Lauga hefur verið með í öllum ráðum og er vægi hennar, að meðaltali um 50%.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.