2.5.2011 | 22:43
Mánudagur 2. maí 2011 - Myndirnar komnar í hús
Það var nú orðið tvísýnt um að systkinin myndu hittast í fyrsta skiptið á þessum sólarhringnum. Það hafðist klukkan rétt fyrir hálfellefu í kvöld.
Guddan var rétt nýsofnuð þegar hringt var ... og hún spratt upp eins og stálfjöður ...
Málið er nefnilega að það var ekki hægðartregða í fröken G. sem orsakaði hitann í gær því í morgun voru enn nokkrar kommur. Það þýddi enginn leikskóli og engin heimsókn á spítalann.
Við feðginin vorum heima og mæðginin á spítalanum ...
En nóg um það ... hér eru nokkrar myndir ...
30. apríl - Fyrsta myndin sem tekin var af blessuðum drengnum ...
30. apríl - Á vigtinni ... 2840 grömm
30. apríl - Kominn með húfuna ...
1. maí - Með húfuna ...
1. maí - Húfan að detta af ...
1. maí - Mæðginin á stofu 24
2. maí - Spekingslegur ...
2. maí - Enn spekingslegur ...
Svo fóru hlutirnir að gerast ...
Syd var afar tortrygginn þegar "Jónatan Heimir" (hér eftir Tani H) mætti á svæðið. Gaut augunum til skiptis á móðurina og bróðurinn.
Það var útskýrt fyrir GHPL að Tani H. þyrfti að fá mjólk að drekka. Þá rauk Guddan fram og hnippti í mig ... "Mjólk, mjólk!"
Ég gaf henni mjólk í glas ... og þá gekk hún beint með glasið til móður sinnar og Tana H. og gaf bendingar um að mjólkin í glasinu ætti að fara ofan í stubbinn. Tók það alls ekki í mál að svo mikið sem dreypa sjálf á mjólkinni.
Þessi mynd sýnir einmitt þegar glasið var afhent ... svipurinn á Syd er mjög dæmigerður fyrir svipinn sem hefur verið á henni síðan bróðirinn kom heim.
En þetta atvik með mjólkina var móment!!!
Svona leit þetta út þegar síðast fréttist ...
Athugasemdir
Dæs!! Hann er dásamlegur!!! - og Lauga hefur ALDREI litið svona vel út!! Hún er gordjöss sæt þarna nýbúin að eiga...hvernig er þetta eiginlega hægt???!!! Ótrúlega manneskja.....
Meiri meiri meiri myndir! Þvilík Risa-knús á alla familíuna!! :)
Bestu kveðjur; Sigga Dóra og co.
Sigga Dóra (IP-tala skráð) 2.5.2011 kl. 23:30
Æðislegar myndir! Lauga lítur frábærlega út, Tani H spekingslegur og mjög svo mannalegur og GHPL pínu efins og enn að átta sig á þessu öllu saman Innilega til hamingju enn og aftur!
Stjóri (IP-tala skráð) 2.5.2011 kl. 23:49
Oooooo.... svo ótrúlega krúttlegt, sætt og dásamlegt! Ef maður verður ekki meir í hjarta og væminn þegar maður sér svona dásemd eins og þessi þrjú eru hvenær þá?? :) Ég er ekki frá því að Tani H. sé bara svolítið líkur Guddunni á sínum frystu dögum. Ástríkt knús á ykkur öll, þ.m.t. síðuhaldari.
Helga Guðrún (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 10:03
Hann líkist nú Guddunni einnig töluvert á sínum þíðu dögum! Fyrirgefðu aulahúmorinn Helga mín
Stjóri (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 15:15
!!!
Abba (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 16:38
Híhíhí :)
Helga Guðrún (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 18:36
Innilega til hamingju með fallega drenginn! Hann er heppinn að eiga svona góða stóra systur Gangi ykkur vel!
Anna Klara (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 20:46
Innilega til hamingju með litla prins.. æðislegar myndir!
Erna Guðrún St. (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 21:25
Hjartanlega til hamingju með þennan undurfallega pilt hann er dásamlegur eins og þið öll í fjölskyldunni reyndar
Sigrún og Nikki (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 22:19
Kæru allir!! Takk frábærlega fyrir þessar kveðjur ... þær eru æðislega skemmtilegar :)
Páll Jakob Líndal, 3.5.2011 kl. 22:44
Halló öll
Innilega til hamingju með drenginn - fréttaflutningur á Króknum er hægur og þessi frétt barst mér loks til eyrna í gær !! Hafið það sem best og hlakka til að sjá ykkur í sumar.
kveðja Heiða frænka á Króknum
Heiða (IP-tala skráð) 15.5.2011 kl. 14:10
Kærar þakkir fyrir :)
Páll Jakob Líndal, 15.5.2011 kl. 22:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.