5.11.2010 | 17:40
Föstudagur 5. nóvember 2010 - 9,5 og mynd
Guddan er alltaf að læra ...
Nýlega ákvað hún að pissa á gólfið í stofunni, þvínæst rölti hún fram í eldhús til að ná í eitthvað að þurrka með.
Viskastykka varð fyrir valinu.
Eftir að hafa þurrkað upp, rölti hún með viskastykkið fram og hengdi það upp á sinn stað.
Þetta er nú frammistaða upp á 9,5.
---
Þessi misserin er alveg gríðarlegur áhugi á því að teikna ... og þá helst með penna ... að teikna með penna er alveg toppurinn á öllu.
Sérstaklega vegna þess að foreldrunum er ekkert vel við að hún sé að teikna með penna.
Annars er það merkilegt hvað það er alltaf mikill áhugi á því að gera það sem ekki má. Í ljósi þess er alveg stórfurðulegt hvað margir foreldrar nenna að eyða miklu púðri í að banna börnum sínum að gera allt mögulegt ...
... sem gerir uppeldið helmingi erfiðara fyrir alla aðila.
---
Í kvöld endurtók Guddan svo leikinn ... pissaði á gólfið ... náði í viskastykki og handklæði. Þurrkaði upp og skilaði þurrkunum aftur í eldhúsið.
Henni var þá góðfúslega bent á að fara frekar með þetta fram í óhreinatauið ... sem hún gerði.
Fór svo aftur inn í stofu en rann þá til í pissi sem hún hafði gleymt að þurrka upp ...
---
Allt fór vel að lokum ... og er gólfið nú spegilfagurt og Guddan í essinu sínu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.