4.11.2010 | 13:05
Fimmtudagur 4. nóvember 2010 - Í fjölmiðlum
Jæja ... þá verður bloggið endurræst eftir góða og mjög annasama Íslandsferð.
Fjórir fyrirlestrar víðsvegar um landið á 10 dögum. Skipulag ferðarinnar skolaðist svolítið sem var bara ágætt en í heildina má segja að góður árangur hafi náðst ... bara eins og það á að vera.
---
Í Fréttablaðinu þann 1. nóvember hnaut ég um þessa fyrirsögn á bls. 6:
... greinin fjallaði því miður ekki um fyrirlestrahald mitt en hefði alveg getað gert það samt. Siggi frændi fær nú víst heiðurinn af þessu ...
---
Í þessu sama blaði var viðtal við mág minn Mugga sem þá var að sýna afurðir sínar á sýningunni Handverk & hönnun í Ráðhúsinu.
Muggi er á kafi í því að búa til þverslaufur úr tré. Mjög skemmtileg hugmynd og frábært handbragð.
Svo var Steina frænka auðvitað líka með á sýningunni í Ráðhúsinu enda hefur hún svo sannarlega verið að gera það gott á síðustu misserum með sína hönnun.
Í Fréttablaðinu, sama dag og sýningin hófst, voru sýnd nokkur valin dæmi af sýningunni ... og auðvitað var þessi mynd í miðjunni ... langstærst.
---
Sjálfur var ég svo í viðtali hjá Leifi Haukssyni í Samfélaginu í nærmynd sl. mánudag.
---
Það er eins og einhverjum finnist eitthvað spennandi það sem verið er að gera ... ;)
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.