2.9.2010 | 22:14
Fimmtudagur 2. september 2010 - Fótboltaliðið 20 mínútur
Eftir um viku mun fótboltaliðið 20 mínútur halda á hið árlega Klakamót, sem haldið verður í Lundi.
Undirritaður hefur verið valinn í starf "þjálfara" og er það í annað skiptið á ævinni sem honum hlotnast sú tign. Starf "þjálfara" 20 mínútna er þó fremur viðalítið og byggist að mestu leyti á því að skipta sjálfum sér aldrei útaf meðan á leik stendur en láta alla aðra "rótera" ... ekki slæmt hlutskipti það.
Í kvöld var settur á fyrsti formlegi æfingaleikurinn hjá liðinu og var hann haldinn á grasvellinum í Herrhagen. Reyndar var hann fremur seint í kvöld, þannig birtuskilyrði voru hræðileg, vægt til orða tekið.
Vildi "þjálfarinn" ólmur að liðin flyttu sig á upplýstan gervigrasvöll sem var skammt frá, en til að gera langa sögu stutta, þá var ekkert hlustað á hann.
Andstæðingurinn að þessu sinni var lið pizzubakara í Herrhagen, sem ku vera langbesta liðið í 7. deildinni hér í Uppsalalandi (held ég). Það er ekki að sökum að spyrja ... 20 mínútur fór með sigur af hólmi úr viðureigninni 5 - 4.
Að sjálfsögðu var "þjálfi" markahæstur með 2 mörk, en þau hefðu auðvitað átt að verða miklu fleiri.
Nú seint í kvöld skoraði lið pizzubakaranna aftur á 20 mínútur. Fer sá leikur fram á sunnudagskvöldið kl. 21 og verður þá leikið á gervigrasinu í Herrhagen undir fullum ljósum.
Pizzubakararnir geta farið að biðja fyrir sér ...
Athugasemdir
...nema þeir séu allir haldnir náttblindu og þeirra sanna eðli muni koma í ljós í birtunni...
Helga Guðrún og Halldór Pálmar, 3.9.2010 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.