2.6.2010 | 21:39
Miðvikudagur 2. júní 2010
Ég komst að því í kvöld að ég hef aldrei tekið hýðið utan af banana með hnífapörum og sömuleiðis borðað banana með hníf og gafli. Ég ákvað því að það yrði nýnæmi dagsins í dag.
Og hver var niðurstaðan? Það er auðveldara að taka hýðið utan af banananum með berum höndum en að nota hnífapör til verksins.
---
Og hvað er búið að gerast þennan dásamlega dag?
Ég ætla að nefna sex atriði sem hafa risið hvað hæst í amstri dagsins. Röð þeirra segir ekki til um mikilvægi þeirra.
1. Hitastig utandyra fór hæst í 23°C milli kl. 16 og 18. Lægst var hitastigið 4°C um klukkan 4 í nótt.
2. Æslagangur á leikvellinum í kaffitímanum ásamt Syd og Laugu.
3. Tillögur varðandi aðalskipulagið á Djúpavogi sem ég sendi til Andrésar oddvita.
4. Rökstuðningur, sem ég setti saman, fyrir ákveðinni aðferðafræði sem ég ætla að nota í rannsókninni minni. Þarfnast þó meiri pælinga, en það sem komið er, er gott.
5. Kókið og súkkulaðið í kvöld.
6. Rifrildi framsóknarmanna í Reykjavík.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.