23.5.2010 | 00:06
Laugardagur 22. maí 2010 - Að framkvæma gjörning
"Hún prumpar alltaf bara", sagði Lauga og leit á mig. Guddan sat á koppnum sínum.
"Það er sjónarmið", svaraði ég.
"Já." Lauga dró annað augað í pung og kinkaði kolli. "Það er rétt ... "
Það er gaman að spá í samræður fólks ...
---
Ég las í Mogganum í dag um konu sem ákvað að gera eitthvað á hverjum degi í eitt ár, sem hún hafði aldrei gert áður.
Við Lauga ætlum að gera þetta líka. Ætlum að taka einn mánuð.
Í dag ætla ég að drekka mjólk út plastpoka.
Lauga ætlar að ganga afturábak upp tröppurnar í stigaganginum.
---
Núna 12 klst og einni giftingarveislu síðar held ég áfram með þessa færslu ...
Ég veit ekki hvort Lauga gekk afturábak upp tröppurnar í stigaganginum.
En ég veit að það er krefst smá útsjónarsemi að drekka mjólk úr plastpoka án þess að sulla niður á sig.
Gjörningi nr. 1 er sum sé lokið.
---
Skrifa eitthvað massíft á morgun ...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.