3.3.2010 | 23:50
Miðvikudagur 3. mars 2010
Þann 3. mars 2008 tók ég þessa mynd á Magdala-æfingavellinum í Sydney. Það var um það leyti sem ég var þjálfari hjá Gladesville Ryde Magic.
Ekki slæmt veður ...
Þann 3. mars 2007 var ég staddur upp í Borgarfirði, þar sem þessi mynd er tekin ...
Þann 3. mars 2009 var ég staddur í Reykjavík ... á því miður enga mynd frá þeim degi.
Og þann 3. mars 2010 er ég staddur í Uppsala ... engin mynd frá þeim degi ...
Svona þvælist maður um ...
****************************
11. dagur í líkamsrækt árið 2010 (2. tilraun)
6.2 km ... var samt helvíti þungur í dag. Tel ástæðuna vera brimsaltan beikonbúðing sem ég át í gær. Ég flokka búðinginn undir eitur ... en hann er samt rosalega góður ;) .
Út að hlaupa á morgun.
****************************
*******
10. dagur í ekki-kók-drykkja (2. tilraun)
Einum of létt
*******
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.